7. september 2010 
 
 
 
 
 
 
Fréttir
28. maí 2010 | Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir
Tolli er '93 módel
Leiðrétting: Í Morkinskinnu þetta árið kemur fram að Þorleifur sé fæddur árið 1992, en hann vill koma því á framfæri að hann er fæddur árið 1993.
meira »
 
5. maí 2010 | Arna Kristín Sigfúsdóttir
Síðasta vistarkeppnin og úrslit vistarmóts
Í gærkvöldi, 5. maí, var síðasta vistarkeppni vetrarins haldin á íþróttavellinum. Keppt var í ýmsum keppnum s.s. pokahlaupi, sipphlaupi, stígvélakasti o.fl. Utanvistarbúar fóru með sigur af hólmi í keppninni með 18 stig, lið Fjalls og Dvergasteins voru í 2. sæti með 13 stig, Tröllasteinn efri í 3. sæti með 12 stig og Tröllasteinn neðri í 4. sæti með 7 stig.
Sigurvegari vistarmótsins í vetur liggur því ljós fyrir. Niðurstöður mótsins í heild:
Fjall/Dvergur: 19 stig
Utanvist: 16 stig
Tröllasteinn efri: 14 stig
Tröllasteinn neðri: 7 stig.
Stjórn NFL óskar Fjalls- og Dvergasteinsbúum til hamingju með sigurinn og þakkar samnemendum fyrir veturinn! :)
meira »
 
3. maí 2010 | Gunnar Sigfússon
Ný stjórn Nemendafélagsins kjörin
Í dag kl 13:00 rann út framboðsfrestur til NFL stjórnar. Aðeins buðu sig 3 fram og þurfti því ekki að grípa til kosninga. Réttkjörin stjórn Nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum veturinn 2010-2011 skipa Daníel Smári Magnússon, forseti, Fjölnir Jónsson, féhirðir og Ísak Már Aðalsteinsson, nótaríus. Undirritaður óskar nýrri stjórn mikillar velgengni næsta vetur.
meira »
 
26. apr 2010 | Gunnar Sigfússon
Vistarkeppni í ýmsu
Á þriðjudaginn kemur, 4. maí, verður haldin síðasta vistarkeppni vetrarins. Að þessu sinni verður keppt í ýmsum greinum og mun keppnin fara fram úti á íþróttavellinum. Keppnin hefst kl 19:30. Ekki verður gefið upp í hvaða greinum verður keppt en menn skulu allavega klæða sig eftir veðri.
meira »
 
7. apr 2010 | Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir
Söngkeppni Framhaldsskólanna
Hin árlega Söngkeppni Framhaldsskólanna verður haldin á Akureyri nk. laugardag, 10. apríl. Armbönd sem gilda bæði á keppnina og á ball á eftir kosta 3.300 kr stk. og verða fáanleg hjá Kristínu Ingibjörgu. Til að fá armband í hendurnar verður fyrst að borga fyrir það, annað hvort með pening eða millifæra á reikning NFL, en miðar með reikningsnúmeri eru á veggnum hjá Kristjönu ritara. 18 sæta rúta fer á keppnina frá Laugum kl 17:45 og aftur heim eftir ball, kl 2:30. Þeir sem vilja fara með rútu eru því beðnir um að skrá sig hér til hliðar. Þá er rétt að benda á að þar sem ferðin er á vegum skólans, gilda í henni almennar skólareglur.
meira »
 
19. mar 2010 | Gunnar Sigfússon
Grunnskólamót
Grunnskólamót ÍFL fór fram á föstudaginn síðasta, 19. mars. Þar mættu alls sex grunnskólar úr nágrenninu til leiks og kepptu sín á milli í alls kyns íþróttum, allt frá dodgeball í skák. Heimamenn í Litlulaugaskóla fóru með sigur af hólmi bæði í stigakeppninni og í hvatningarkeppninni sem stóð yfir allan daginn. Keppni fór vel fram og að henni lokinni var sundlaugarpartý fram eftir kvöldi.
meira »
 
11. mar 2010 | Arna Kristín Sigfúsdóttir
Freaky Hairday!
Á morgun, föstudaginn 12. mars, verður svokallaður Fríkaður hárdagur í Framhaldsskólanum á Laugum. Eru nemendur þá hvattir til að mæta í skólann með eins "fríkað" hár og þeim dettur í hug.
meira »
 
22. feb 2010 | Gunnar Sigfússon
Bryndís Elsa sigrar Tónkvísl 2010!
Í gærkvöldi fór fimmta Tónkvíslin fram fyrir þéttsetnu íþróttahúsi á Laugum. Alls stigu 16 stórglæsileg atriði á stokk þetta sunnudagskvöld. Í framhaldsskólakeppninni var það Bryndís Elsa Guðjónsdóttir sem fór með sigur af hólmi, en hún söng lagið Gravity með Söru Bareilles. Í öðru sæti varð Þorbjörg Eva Magnúsdóttir, eða Obba, og í þriðja sætti var kvartett skipaður þeim Örnu Kristínu Sigfúsdóttur, Gígju Valgerði Harðardóttur, Indíönu Þórsteinsdóttur og Rögnu Baldvinsdóttur. Grunnskólakeppnin fór þannig að Valdís Jósefsdóttir frá Borgarhólsskóla sigraði með laginu My Immortal eftir Evanescence, í öðru sæti varð dúettinn Auður Katrín Víðisdóttir og Rakel Ösp Aðalsteinsdóttir og í þirðja sæti urðu svo tríóið Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir, Berglind Ólafsdóttir og Ruth Ragnarsdóttir. Tæknilegir örðugleika með upphafsmyndband keppninnar urðu til þess að keppninni seinkaði um töluverðan tíma, og biðst NFL afsökunar á þeim töfum. Ekki tókst að spila myndbandið í tíma, en það hefur nú verið sett á youtube og má fyrri hlutann finna hér og þann seinni hér. NFL þakkar að lokum innilega öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að gera keppnina jafn glæsilega og hún varð.
meira »
 
15. feb 2010 | Gunnar Sigfússon
Vefsíða Tónkvíslarinnar opnuð!
Nú hefur vefsíða Tónkvíslar 2010 verið opnuð á sínum vanalega stað, nfl.is/tonkvisl. Undirbúningur Tónkvíslar er nú í fullum gangi og munu störf hefjast í íþróttahúsinu á miðvikudag kl 16:00.
meira »
 
10. feb 2010 | Gunnar Sigfússon
Tónkvísl 2010
Þann 21. febrúar nk. mun söngkeppni NFL, Tónkvíslin, fara fram í íþróttahúsinu á Laugum. Í ár eru 23 atriði skráð til leiks, sem er metþátttaka. Alls eru 7 atriði úr Framhaldsskólanum en hvorki meira né minna en 16 atriði koma frá grunnskólunum. Þess ber að geta að grunnskólaatriðin hafa þrátt fyrir mikinn fjölda verið skorin niður um 5 og má því segja að grunnskólaliður Tónkvíslarinnar sé í mikilli uppsveiflu. Heimasíða Tónkvíslarinnar er nú að skríða saman, því miður heldur seinna en undanfarin ár, en undanfarna daga hafa hönnuðir NFL staðið í ströngu við að hanna útlit Tónkvíslar 2010, en það er hægt að sjá hér til hægri. Nánari fréttir af Tónkvíslinni munu koma fram á heimasíðunni og þegar nær dregur keppni.
meira »
 
 
Fyrri [ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 ] Næsta
 
N1 safnkort
 
 
Hinn eini sanni Eldrefur
Eldrefurinn - sá allra besti
 © Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum | 650 Laugar | kt. 600401-3270 | 464 6310 | nfl@nfl.is .is design