Í dag kl 13:00 rann út framboðsfrestur til NFL stjórnar. Aðeins buðu sig 3 fram og þurfti því ekki að grípa til kosninga. Réttkjörin stjórn Nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum veturinn 2010-2011 skipa Daníel Smári Magnússon, forseti, Fjölnir Jónsson, féhirðir og Ísak Már Aðalsteinsson, nótaríus. Undirritaður óskar nýrri stjórn mikillar velgengni næsta vetur. |