7. september 2010 
 
 
 
 
 
 
Fréttir
» Síðasta vistarkeppnin og úrslit vistarmóts
Í gærkvöldi, 5. maí, var síðasta vistarkeppni vetrarins haldin á íþróttavellinum. Keppt var í ýmsum keppnum s.s. pokahlaupi, sipphlaupi, stígvélakasti o.fl. Utanvistarbúar fóru með sigur af hólmi í keppninni með 18 stig, lið Fjalls og Dvergasteins voru í 2. sæti með 13 stig, Tröllasteinn efri í 3. sæti með 12 stig og Tröllasteinn neðri í 4. sæti með 7 stig.

Sigurvegari vistarmótsins í vetur liggur því ljós fyrir. Niðurstöður mótsins í heild:

Fjall/Dvergur: 19 stig
Utanvist: 16 stig
Tröllasteinn efri: 14 stig
Tröllasteinn neðri: 7 stig.

Stjórn NFL óskar Fjalls- og Dvergasteinsbúum til hamingju með sigurinn og þakkar samnemendum fyrir veturinn! :)
 
5. maí 2010 - 14:19 ׀ Arna Kristín Sigfúsdóttir
Fyrri frétt ׀ Næsta frétt

 
Skoðanir (1)
 
Aðeins innskráðir meðlimir NFL geta tekið þátt í skoðunum
 
N1 safnkort
 
 
Hinn eini sanni Eldrefur
Eldrefurinn - sá allra besti
 © Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum | 650 Laugar | kt. 600401-3270 | 464 6310 | nfl@nfl.is .is design