Þróttó var reist sem íþróttahús við Laugaskóla í Reykjadal árið 1931. Árið 1945 gaf Helgi Benediktsson kaupmaður í Vestmannaeyjum skólanum tvær vélar til kvikmyndasýninga og var þeim valinn staður í Þróttó. Báru nemendur þá stóla úr matsal skólans í Þróttó til að njóta sýninganna betur. Árið 1965 var keypt ný sýningarvél og er hún enn í notkun. Margar helstu perlur kvikmyndasögunnar hafa verið sýndar í Þróttó og var kvikmyndin Tónaflóð (Sound of Music) til að mynda sýnd 6 sinnum fyrir fullum sal.
Árið 1978 var nýtt íþróttahús tekið í notkun á Laugum og í kjölfarið var salurinn endurbættur og árið 1982 var komið fyrir sætaröðum og einnig reist svið.
Í tilefni af 80 ára afmælis Laugaskóla nú í ár og 60 ára afmælis kvikmyndasýninga á Laugum stofnuðu nokkrir nemendur skólans Byggingarfélagið Ófeig í lok september. Unnið var hörðum höndum að miklum endurbókum á salnum frá lok september og út október. Sviðinu var breytt og nýtist það nú betur en hið gamla, meira bil er á milli sætaraða auk þess sem sætum var fækkað úr 170 í 110. Gangar eru nú meðfram veggjum en ekki í miðju eins og áður var og þá er veggur aftast svo birta skíni ekki á sýningartjaldið meðan á sýningum stendum. Aðgengi er nú fyrir hjólastóla í salnum.
Framtakið var að frumkvæði nemenda sem gáfu alla sína vinnu en skólinn borgaði efniskaup.
Í gamla íþróttahúsinu, Þróttó, er nú kvikmyndahús staðarins, Laugabíó. Sýnt er að jafnaði einu sinni í viku, venjulega á fimmtudagskvöldum. Nemendur, starfsfólk og innansveitarmenn hafa verið duglegir að notfæra sér þessa þjónustu. Salurinn er einnig nýttur fyrir annað samkomuhald sem fram fer á sviði, s.s. tónleika, skemmtidagskrár, stuttar leiksýningar, til æfinga fyrir hljómsveitir staðarins o.fl.
Myndir frá byggingarframkvæmdinni má nálgast hér, í myndaalbúmi NFL. |