7. september 2010 
 
 
 
 
 
 
Myndir
Sent inn: 25.4.2010 Upphafsatriði Tónkvíslar 2010
Meira en mánuði áður en Tónkvísl 2010 fór fram hófust tökur á einu mergjaðasta upphafsatriði sem sést hefur í söngkeppni. Hér eru komnar nokkrar svipmyndir frá þessum upptökum en myndbandið er hægt að finna á Youtube.

Fjöldi:140
Myndir:Arna Kristín Sigfúsdóttir
Flettingar:104968
   
   
Sent inn: 7.2.2010 Bandý á ís
Miðvikudaginn 3. febrúar héldu vistirnar út á ísi lagða tjörnina á Laugum til þess að spila bandý. Keppnin var bæði vistarkeppni og fyrsti liður skólans í Íþróttavakningu framhaldsskólanna í ár.

Fjöldi:53
Myndir:Arna Kristín Sigfúsdóttir, Anna Guðrún Sveinsdóttir,
Flettingar:39924
   
   
Sent inn: 29.11.2009 Árshátíð FL 2009
Hin árlega árshátíð Framhaldsskólans á Laugum var haldin að Breiðumýri 27. nóvember.

Fjöldi:158
Myndir:Ingólfur Sigfússon - Gunnar Sigfússon
Flettingar:122846
   
   
Sent inn: 3.10.2009 Svaðilför í Ljósvetningabúð
Þann 09.09.09 var haldið í hina árlegu Svaðilför skólans og NFL. Í þetta skiptið var haldið í Ljósvetningabúð þar sem farið var ýmislegt var brallað að vanda. Kokkurinn mætti svo og grillaði hamborgara ofan í mannskapinn.

Fjöldi:104
Myndir:Arna Kristín Sigfúsdóttir
Flettingar:76661
   
   
Sent inn: 2.9.2009 Nýnemavika 2009
Hér má finna myndir frá fyrstu viku skólaársins 2009-2010. Margt var um að vera, allt frá ratleik yfir í leiki og þrautir og að endingu var stokkið í tjörnina.

Fjöldi:149
Myndir:Arna Kristín Sigfúsdóttir
Flettingar:110523
   
   
Sent inn: 16.2.2009 Tónkvíslaræfing 15. febrúar 2009
Sunnudaginn 15. febrúar, viku fyrir Tónkvísl mættu flest þau atriði sem eiga að keppa í keppninni í ár í Þróttó og æfðu með hljómsveitinni.

Fjöldi:56
Myndir:Arna Kristín Sigfúsdóttir
Flettingar:44784
   
   
Sent inn: 12.9.2008 Svaðilför í Mývatnssveit
Miðvikudaginn 10. september lögðu Laugalimir upp í svaðilför til Mývatnssveitar. Farið var í Ultimate Disc og spurningakeppni ásamt fleiru. Gist var eina nótt í Skjólbrekku.

Fjöldi:48
Myndir:Anette Larsen
Flettingar:36231
   
   
Sent inn: 12.9.2008 Nýnemavígsla
Þriðjudaginn 2. september voru nýnemar vígðir inn í skólann. Í tilefni af því kepptu nýnemar og eldri nemendur sín á milli í ýmsum íþróttagreinum.

Fjöldi:115
Myndir:Anna Signý Magnúsdóttir, Kristín Lea Sigríðardóttir og Tinna Rún Svansdóttir
Flettingar:90467
   
   
Sent inn: 20.4.2008 Tónkvísl 2008
17. febrúar fór Tónkvíslin fram í íþróttahúsinu. Alls kepptu 28 keppendur í 17 atriðum í tvískiptri keppni framhaldsskólans og grunnskólanna á svæðinu. Hjalti Rúnar Jónsson sigraði framhaldsskólakeppnina og Sigrún Helga Andrésdóttir sigraði grunnskólakeppnina.

Fjöldi:86
Myndir:Örlygur Hnefill Örlygsson og Sirrý Björt Lúðvíksdóttir
Flettingar:66667
   
   
Sent inn: 11.4.2008 Meðmælaganga
Miðvikudaginn 9. apríl var forvarnardagur í aðildarskólum Sambands Íslenskra Framhaldsskólanema, eða SÍF. Í tilefni dagsins ákvað stjórn NFL að efna til "meðmælagöngu" yfir Fljótsheiði og að Goðafossi.

Fjöldi:27
Myndir:Arna Kristín Sigfúsdóttir og Þóra Fríður Björnsdóttir
Flettingar:22074
   
   
Sent inn: 9.3.2008 Grunnskólamót ÍFL
Föstudaginn 6. mars var Grunnskólamót ÍFL haldið í íþróttahúsinu við tjörnina. Sex grunnskólar mættu til leiks og var það Reykjahlíðarskóli sem að bar sigur úr býtum. Um kvöldið var svo haldið diskótek í íþróttasalnum.

Fjöldi:106
Myndir:Örlygur Hnefill Örlygsson og Sirrý Björt Lúðvíksdóttir
Flettingar:79395
   
   
Sent inn: 9.3.2008 Vistarkeppni 6. mars
Fimmtudaginn 6. mars fór fram vistarkeppni í hinum ýmsu greinum. Þegar árangur hafði verið tekinn saman var það Dvergasteinn sem náði flestum stigafjölda og sigraði því Vistarkeppni marsmánaðar.

Fjöldi:45
Myndir:Örlygur Hnefill Örlygsson
Flettingar:34984
   
   
Sent inn: 9.3.2008 Boot camp
Í vetur hefur hópur nemenda verið skráður í Boot camp í íþróttavali. Undanfarnar vikur hafa tveir nemendur við Íþróttakennaraháskólann á Laugarvatni verið hér í starfsþjálfun og þeir notuðu tækifærið og mynduðu krakkana í Boot camp.

Fjöldi:35
Myndir:Ólafur Sigfús Björnsson og Valur Hentze Úlfarsson
Flettingar:27969
   
   
Sent inn: 7.2.2008 Öskudagur 2008
7. febrúar var öskudagur, og að venju klæddu nemendur og starfsmenn sig upp í búninga.

Fjöldi:8
Myndir:Gunnar Sigfússon
Flettingar:13841
   
   
Sent inn: 15.1.2008 Árshátíð Laugaskóla 2007
30. nóvember hélt skólinn sína árlegu Árshátíð á Breiðumýri. Að vanda sáu vistirnar um að skemmta fólki með vistaratriðum auk þess sem starfsfólk kom með sitt eigið "vistaratriði".

Fjöldi:81
Myndir:Elín Frímannsdóttir o.fl.
Flettingar:61361
   
   
Sent inn: 12.12.2007 Dragkeppni 5. des
5. desember fór fram Dragkeppni í Þróttó. Keppnin er hluti af vistarmótinu þetta árið og varð það fulltrúi Fjalls sem sigraði þetta skiptið.

Fjöldi:27
Myndir:Tinna Stefánsdóttir
Flettingar:26617
   
   
Sent inn: 20.11.2007 Laugamótið 07-08
Helgina 16.-17. nóvember var hið margfræga Laugamót í knattspyrnu haldið. Hér má sjá svipmyndir frá því og myndir af verðlaunahöfum.

Fjöldi:10
Myndir:Jónas Stefánsson
Flettingar:9857
   
   
Sent inn: 7.11.2007 Ævintýraferð að Laugarvatni
Helgina 2.-4. nóvember fóru 58 nemendur og 2 starfsmenn í Ævintýraferð að Laugarvatni þar sem nemendur ML tóku höfðinglega á móti Laugamönnum. Stuttu eftir að rútan renndi í hlað var haldið í íþróttahúsið og keppt í ýmsum óhefðbundnum íþróttagreinum. Á laugardaginn var keppt í íþróttum fyrri partinn og skemmtidagskrá um kvöldið. Haldið var heim á leið kl 11 á sunnudagsmorguninn.

Fjöldi:157
Myndir:Halldóra Kristín Bjarnadóttir
Flettingar:116445
   
   
Sent inn: 28.9.2007 Freaky Hairday
Föstudaginn 28. september var haldinn Freaky hairday í skólanum. Hér má sjá svipmyndir frá deginum.

Fjöldi:21
Myndir:Tinna Stefánsdóttir
Flettingar:17806
   
   
Sent inn: 26.9.2007 Hinsegin dagur
26. september var haldinn hinsegin dagur, karlmenn klæddu sig sem kvenmenn og kvenmenn klæddu sig sem karlmenn. Sigurvegari kvennakeppninnar var Jónas Stefánsson og sigurvegari karlakeppninnar var Emma Lovísa Diego.

Fjöldi:44
Myndir:Kristín Lea Sigríðardóttir
Flettingar:37068
   
   
Sent inn: 14.9.2007 Félagsvist 13. september
13. september sl. var haldin félagsvist í matsal skólans. Hér eru svipmyndir frá þessu skemmtilega kvöldi.

Fjöldi:27
Myndir:Ýmsir
Flettingar:26099
   
   
Sent inn: 14.9.2007 Svaðilför í Mývatnssveit
Hér eru komnar myndir frá Svaðilförinni sem farin var mánudaginn 10. sept og komið heim þriðjudaginn 11. sept. Farið var í jarðböðin og gist var í félagsheimilinu Skjólbrekku.

Fjöldi:61
Myndir:Halldóra Kristín Bjarnadóttir o.fl.
Flettingar:46559
   
   
Sent inn: 6.9.2007 Vígsluathöfn nýnema
Föstudaginn 31. ágúst fór Vígsluathöfn nýnema við Laugaskóla fram. Hér eru nokkrar myndir af atburðinum.

Fjöldi:22
Myndir:Jóhannes Sigurjónsson
Flettingar:18568
   
   
 
Myndir frá skólaárinu 2006-2007
Myndir frá skólaárinu 2005-2006
Myndir frá skólaárinu 2004-2005
 
N1 safnkort
 
 
Hinn eini sanni Eldrefur
Eldrefurinn - sá allra besti
 © Nemendafélag Framhaldsskólans á Laugum | 650 Laugar | kt. 600401-3270 | 464 6310 | nfl@nfl.is .is design