|
Haustönn 2007 tók stjórn NFL þá ákvörðun að taka upp nýtt mót til að reyna að halda uppi góðri vistarstemningu í skólanum. Nefnist keppnin Vistarmótið og er það keppni á ýmsum vettvangi milli vista yfir allt skólaárið.
Haldin er ein keppni í mánuði á milli vista, í einhverri íþrótt eða á einhverjum keppnishæfum vettvangi. Sú vist sem vinnur hverja keppni fær 4 stig, annað sæti fær 3 stig og svo koll af kolli. Í vor fær síðan stigahæsta vistin hin sæmilegustu verðlaun.
Liðin í ár skiptast þannig að Dvergasteinn og Fjall mynda sameiginlegt lið til þess að halda eins eðlilegum fjölda á hverri vist fyrir sig þar sem vistum á Gamla skóla hefur verið lokað. Vegna mikils fjölda nemenda á utanvist þætti það ekki sanngjarnt að hafa Dvergastein einan með sína 11 liðsmenn.
Staðan
1. Dvergasteinn/Fjall - 10 stig 2. Utanvist - 9 stig 3. Tröllasteinn efri - 6 stig 4. Tröllasteinn neðri - 3 stig
Nóvember - Vistaratriði á árshátíð
Að venju var keppt milli vista í vistaratriðum. Í ár fóru utanvistarfólk með sigur af hólmi með endurgerð sinni af tölvuleiknum Super Mario bros, í öðru sæti var svo Trölli efri með "live" frumsamið rapp-atriði og Fjall/Dvergasteinn urðu í síðasta sæti en nældu sér samt í 2 stig. Trölli neðri sendi ekki atriði í keppnina.
Október - Skeinibolti
20. október fór fram keppni í svokölluðum skeinibolta. Þá fá leikmenn gleraugu úr klósettpappírsrúllum og nælonsokkum. Keppnin var gríðarlega skemmtileg Fjalls/Dvergasteinsmenn með sigur af hólmi.
September - Leikin sjónvarpsauglýsing
Í svaðilför skólans og NFL í Ljósvetningabúð var haldin keppni í leikhæfileikum og frumleika. Þar áttu vistirnar að búa til sjónvarpsauglýsingu fyrir Framhaldsskólann á Laugum og leika á sviði fyrir samnemendur sína. Fjall/Dvergasteinn fór með sigur af hólmi, Utanvist var í öðru sæti og Trölli neðri í þriðja. Trölli efri keppti ekki og hlaut því engin stig.
Stjórn NFL
|