Í ljósi fyrirhugaðra breytinga og þeirra breytinga sem hafa orðið á Söngkeppni framhaldsskólanna undanfarin ár hafa nemendafélög Framhaldsskólans á Laugum, Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu, Menntaskólans á Tröllaskaga og Verkmenntaskóla Austurlands tekið þá ákvörðun að fylgja fordæmi Þórdunu, nemendafélags Verkmenntaskólans á Akureyri og draga sig úr keppninni þetta árið. Með þessari ákvörðun erum við að láta í ljós óánægju okkar með fyrirhugaðar breytingar sem verða innleiddar í keppnina í ár. Breytingarnar fela það í sér að til þess að eiga möguleika á því að taka þátt í keppninni þarf hver skóli að senda inn upptöku af sínu atriði. Það er síðan dómnefnd sem mun fara yfir atriðin og velja 12 atriði sem munu taka þátt í aðalkeppninni. Hver skóli borgar 40.000 kr fyrir það að senda inn upptöku ásamt því að fá aðgang að æfingahelgi fyrir keppninna í Reykjavík. Þeir skólar sem verða síðan valdir áfram í lokakeppnina þurfa að borga auka 30.000 kr í þátttökugjald og skuldbinda sig auk þess til að selja 20 miða til nemenda sinna á aðalkeppnina.
Augljóst er að hið nýja fyrirkomulag kemur sér sérstaklega illa fyrir litla skóla á landsbyggðinni. Fyrir nemendafélög með takmarkaðan fjárhag þá er þátttökugjaldið alltof hátt, sérstaklega í ljósi þess að við séum einungis að greiða fyrir það að senda upptöku af atriðinu og aðgang að æfingahelginni. Við erum mjög ósátt með það að ekkert tillit sé tekið til þess gríðarlega mikila aukakostnaðar sem að lendir á nemendafélögum skóla af landsbyggðinni við það að senda keppendur tvisvar til Reykjavíkur bæði á æfingahelgina og aðalkeppnina og síðan áhorfendur með keppendum á aðalkeppnina sjálfa. Með þessu fyrirkomulagi sitja skólar af höfuðborgarsvæðinu og skólar af landsbyggðinni ekki við sama borð og skólum er mismunað eftir landfræðilegri staðsetningu. Einnig erum við mjög ósátt með það að einungis 12 keppendur fá tækifæri til þess að stíga á svið og koma fram í sjónvarpi. Við teljum þetta fyrirkomulag ekki stuðla að því að keppnin verði stökkpallur fyrir unga og efnilega listamenn til að koma sér á framfæri eins og markmið keppninnar ætti að vera. Við sjáum ekki hag okkar í því að taka þátt í söngkeppni framhaldsskólanna þetta árið og munum við ekki endurskoða ákvörðun okkar fyrr en viðeigandi breytingar verða gerðar. Fyrir hönd eftirtalinna nemendafélaga Eva Sól Pétursdóttir Formaður Nemendafélags Framhaldsskólans á Laugum Haukur Orri Kristjánsson Formaður Trölla, nemendafélags Menntaskólans á Tröllaskaga Sigurður Ingvi Gunnþórsson Formaður Nemendafélags Verkmenntaskóla Austurlands Sævar Örn Kristjánsson Formaður Nemendafélags Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu Þá er forsala á miðum á Tónkvíslina hafin. Forsalan fer fram á [email protected] og það er 500 kr afsláttur á öllum miðum í forsölu, tryggið ykkur miða sem fyrst!
Hér má sjá myndbönd sem voru gerð fyrir árshátíð NFL sem haldin var 13. nóvember s.l. Þetta er annars vegar árshátíðarmyndbandið sjálft og hins vegar kynningarmyndband stjórnarinnar :) Þá er skólinn hafinn enn á ný þetta haustið eftir gott sumarfrí og bjóðum við nú alla nýnema velkomna á Lauga. Framundan er skemmtilegur vetur með fullt af viðburðum. Hvetjum ykkur að vera með og hjálpa okkur að gera þennan vetur ógleymanlegan!
Eftirfarandi númer á miðum gefa vinninginn sem við á:
Vinningur eitt: Miði númer 519 Vinningur tvö: Miði númer 432 Vinningur þrjú: Miði númer 486 Vinningur fjögur: Miði númer 263 Vinningur fimm: Miði númer 120 Vinningur sex: Miði númer 324 Vinningur sjö: Miði númer 177 Vinningur átta: Miði númer 357 Vinningur níu: Miði númer 421 Vinningur tíu: Miði númer 379 Vinningur ellefu: Miði númer 470 Vinningur tólf: Miði númer 88 Vinningur þrettán: Miði númer 331 Vinningur fjórtán: Miði númer 132 Vinningur fimmtán: Miði númer 346 Vinningur sextán: Miði númer 93 Vinningur sautján: Miði númer 187 Vinningur átján: Miði númer 533 Vinningur nítján: Miði númer 128 Vinningur tuttugu: Miði númer 434 Ef einhver á miða með einhverju af þessum númerum má hann gefa sig fram við Loga Helgason í síma 856 4937 Að lokum viljum við í útskriftarhópnum óska þeim sem fengu vinning til hamingju og þökkum við öllum hinum fyrir þáttökuna. Einnig viljum við óska ykkur gleðilegra jóla og vonum að þið njótið jólahátíðarinnar. |