NFL
  • Tilkynningar
  • Stjórn
  • Lög félagsins
  • Hafa samband

Stjórn NFL -  haustönn 2014

16/12/2014

0 Comments

 
Hér má sjá árshátíðarmyndband NFL sem einnig er kynningarmyndband fyrir stjórn haustannar. 
0 Comments

Jóla- og sparifatadagur NFL 2014

11/12/2014

0 Comments

 
Í dag var haldinn hinn árlegi Jóladagur NFL í Framhaldsskólanum á Laugum og flestir nemendur skólans mættu spariklæddir þrátt fyrir veðrið. Boðið var upp á smákökur og nammi í löngu frímínútunum auk þess sem jólasveinar kíktu í heimsókn. Í hádeginu var boðið upp á hangikjöt, jólaöl og ís í mötuneytinu. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá jóladeginum.
Að lokum vill stjórn NFL þakka meðlimum NFL fyrir frábæra önn og óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Picture
Picture
Picture
0 Comments

Þá byrjar þetta!

17/8/2014

0 Comments

 
Picture
Framhaldsskólinn á Laugum verður settur sunnudaginn 24. ágúst 2014 kl. 18.00. Athöfnin verður í íþróttahúsi skólans og þess er vænst að nemendur skólans verði viðstaddir. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir á skólasetninguna og er öllum viðstöddum boðið að þiggja veitingar í mötuneyti skólans að lokinni skólasetningu.

Heimavistirnar opna þann sama dag kl. 13 og verða lyklar að heimavistarherbergjum afhendir á skrifstofu skólans frá þeim tíma.

Bjóðum við alla nemendur skólans velkomna til náms á Laugum.

0 Comments

Útskrift vor 2014

30/5/2014

0 Comments

 
Laugardaginn 24. maí sl. mættu um 250 manns í íþróttahúsið á Laugum til að fagna útskriftar nemenda Framhaldsskólans. Veglegar veitingar voru í boði sem töfraðar voru fram af starfsfólki mötuneytisins í FL. 

Stúdentar í maí 2014:

Benedikt Magnus Zens Náttúrufræðibraut

Björn Húnbogi Birnuson Náttúrufræðibraut

Daníel Smári Magnússon Félagsfræðibraut

Daníel Viðar Sigurjónsson Íþróttabraut og félagsfræðibraut

Eydís Helga Pétursdóttir Náttúrufræðibraut

Hafrún Huld Hlinadóttir Félagsfræðibraut

Hjörtur Kristján Hjartarson Náttúrufræðibraut

Guðmuna Birta Jónsdóttir Félagsfræðibraut

Rakel Ósk Aðalsteinsdóttir Félagsfræðibraut

Svava Ósk Aðalsteinsdóttir Félagsfræðibraut

Teitur Erlingsson Náttúrufræðibraut

Valdís Jósefsdóttir Félagsfræðibraut
Picture
Fólk var ánægt með gleðilegan dag og mættu eldri stúdentar til að taka þátt í hátíðahöldunum. 

Óskum við útskriftarnemendum innilega til hamingju með áfangann. 

Skólasetning næsta haust er sunnudaginn 24. ágúst, nánar auglýst síðar. 
0 Comments

Vinningsnúmer í happdrætti útskriftarhóps Framhaldsskólans á Laugum

1/4/2014

0 Comments

 
Eftirfarandi númer á miðum gefa vinninginn sem við á:

Vinningur eitt: Miði númer 608
Vinningur tvö: Miði númer 58
Vinningur þrjú: Miði númer 103
Vinningur fjögur: Miði númer 580
Vinningur fimm: Miði númer 582
Vinningur sex: Miði númer 603
Vinningur sjö: Miði númer 201
Vinningur átta: Miði númer 29
Vinningur níu: Miði númer 307
Vinningur tíu: Miði númer 213
Vinningur ellefu: Miði númer 197
Vinningur tólf: Miði númer 542
Vinningur þrettán: Miði númer 609
Vinningur fjórtán: Miði númer 610

Ef einhver á miða með einhverju af þessum númerum má hann gefa sig fram hið snarasta við Alexöndru Tryggvadóttur í síma 845 2320.

Að lokum viljum við í útskriftarhópnum þakka öllum sem tóku þátt og óskum þeim sem fengu vinning til hamingju!


0 Comments

Kynningarmyndband fyrir Tónkvísl 2014

30/1/2014

0 Comments

 

Takið 1. mars frá !!
0 Comments

Árshátíð Framhaldsskólans á Laugum 2013

20/11/2013

0 Comments

 
Picture
Árshátíð Framhaldsskólans á Laugum var haldin að Ýdölum sl. föstudagskvöld.  Um 200 manns sóttu árshátíðina sem var hin glæsilegasta. 

Veislustjórar hátíðarinnar að þessu sinni voru þeir Auðunn Blöndal og Pétur Jóhann Sigfússon. Boðið var upp á mörg úrvals skemmtiatriði sem nemendur útbjuggu sjálfir. Að loknu borðhaldi var dansleikur þar sem hljómsveitin SOS frá Húsavík spilaði á. Sjá má nokkur skemmtiatriði frá árshátíðinni á Facebooksíðu NFL og svo inn á youtube.com.
Birt af 641.is



0 Comments

Stjórn NFL 2013 - 2014

17/11/2013

0 Comments

 
0 Comments

ÁRSHÁTÍÐ FRAMHALDSSKÓLANS Á LAUGUM 2013

11/11/2013

0 Comments

 
Picture
Árshátíð Framhaldsskólans á Laugum verður haldin á Ýdölum þann 15. nóvember 2013 næstkomandi. 

Miðaverð er 6500kr.- fyrir meðlimi NFL og 7500kr.- fyrir aðra gesti. Við reyndum að halda verðinu í algjöru lámarki.

Til þess að skrá sig á árshátíðina fara nemendur til ritara, Kristjönu, og láta hana vita. Þá mun það verð sem borga þarf fyrir árshátíðina bætast við á mötuneytisreikning nemenda.
Aðrir gestir borga 7500kr.- á Ýdölum á föstudagskvöldið, þar verður posi.
Blað með skráningu í rútu og borðaskráning (þeir sem vilja láta taka frá borð fyrir sig) mun hanga í skólanum.
Rúta fer frá Tröllaplaninu klukkan 18.40 og er hún öll á kostnað nemendafélagsins. Rútan fer svo á Lauga eftir ballið.
Húsið verður opnað klukkan 18.45.
Enginn þarf að hafa áhyggjur af fótboltaleiknum þar sem að minnsta kosti fyrri hálfleikur verður sýndur áður en borðhald hefst.
Hin ýmsu atriði og ræður munu skemmta gestum auk hinnar geysivinsælu vistarkeppni að vana.
Einnig verður himnseskt veisluhlaðborð, frábær veislustjóri og að lokum mun SOS leika fyrir dansi fram eftir nóttu. 
Spariklæðnaður er MUST og við vljum sjá ALLA á ballinu!
Pepp!

0 Comments

LÖNG HELGI!

19/10/2013

0 Comments

 
Picture
Kennt verður til kl. 12.30 föstudaginn 18. október 2013, síðan LÖNG HELGI.

Heimavistir verða opnaðar á þriðudaginn 22. okt. kl. 13.00.

Kennsla byrjar aftur miðvikudaginn 23. október samkvæmt stundaskrá.


0 Comments
<<Previous
Forward>>
    Picture

    Aðalstyrktaraðilar Tónkvíslarinnar 2016:

    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
    Picture
Powered by Create your own unique website with customizable templates.
Photo used under Creative Commons from JoyTek
  • Tilkynningar
  • Stjórn
  • Lög félagsins
  • Hafa samband